Abdulla Omar frá Quatar var í heimsókn hér á landi í boði klúbbsins, þar sem hann tók út bátasportið hér á Íslandi og sagði hann að Marex klúbburinn toppaði þetta allt og fékk hann fyrstu einkunn. Hann hefur skilað inn umsókn um inngöngu í klúbbinn og er hún nú til skoðunar hjá stjórninni.
Abdulla langar í klúbbinn
Jólahlaðborð desember 2003
Hið árlega jólahlaðborð var að þessu sinni haldið á hæðsta punkti Reykjavíkur, á efstu hæðinni í Húsi verslunarinnar. Það var að venju Lávarður úthafanna, ofurhugi undirdjúpann og sendiherra glæsimenskunnar á Íslandi sem töfraði fram gómsæta veislurétti ofan í klúbbmeðlimi og maka þeirra.
Meðlimir fengu afhentar forláta flíspeysur með ísaumuðu Marex merkinu og nafni hvers og eins.
Hér fyrir neðan má sjá gleðina í hverju andliti þegar Marex meðlimir klæddust "einkennisbúningnum" í fyrsta sinn.